Jæja, það er kominn september og tími til að taka til eftir sumarið. Síðasti sumarpistillinn minn í Tengivagninum var fluttur á Rás 1 13. ágúst og hér kemur textaútgáfan.
Haustið er spennandi tími í bókmenntalífinu - fyrstu öldur jólabókaflóðsins sleikja ströndina og það er svo margt dásamlegt á leiðinni sem maður veit ekki einu sinni hvað er. Barnabókin okkar Huldu Sigrúnar fer í prentun núna fyrir helgi og birtist þá í hinum áþreifanlega veruleika síðla í október. Við fengum með okkur nýja samstarfskonu - teiknarann snjalla Estelle Pollaert - og ég hlakka svo til að sýna ykkur bókina þegar nær dregur.
En fyrst, vangaveltur um að vera á fimmtugsaldri innan tungumálsins, og fleira!
Einn hógværasti hópur af ofurhetjum sem ég þekki eru þýðendur.
Þýðendur eru stétt í útrýmingarhættu.
Um daginn var ég að eiga við grænu ugluna Duolingo í símanum mínum. Hún stóð á því fastar en fótunum að til þess að segja You’re welcome á dönsku segði maður Det er så lidt. Á íslensku myndum við sennilega segja Alveg sjálfsagt.
Þessir þrír kurteisisfrasar eru kannski hver öðrum líkir og innibera svipaða merkingu. Sjaldan hangir öll merking samtals á þessu tilsvari.
En mér finnst svo heillandi að velta fyrir mér hvernig orðin veljast. Danskan segir að það sem þakkað er fyrir hafi varla verið neitt ómak.
Enskan segir að það hafi verið guðvelkomið að leggja eitthvað á sig fyrir hinn.
Íslenskan segir að þetta hafi tæpast neinn greiði, það tekur því ekki að nefna hann. Það hefði raunar frekar verið fréttnæmt ef maður hefði ekki gert hann.
Á öllum þessum tungumálum er svo hægt að svara þökkum á ýmsa aðra lund. Við Íslendingar getum vel sagt „ekkert mál!“ eða „það er velkomið,“ eða „Ekkert að þakka“ og hver og ein útgáfa felur í sér aðeins, örlítið ólíka hugsun en hinar.
Þegar þýðandi kemur að texta þarf hann að ákveða hvaða ófullkomnu hliðstæðu hann skuli velja. Á hann að velja sem nákvæmustu þýðingu, eða á hann að elta samsvarandi orðtak á viðtökumálinu? Det var så lidt er kannski nærri „Það var ekkert,“ en myndi maður nota þessi tvö svör alveg hliðstætt? Er „Það var ekkert“ ekki svolítið hversdagslegri notkun, jafnvel svolítið hranalegri, því orðið ekkert er svo nöturlegt? Og er det var så lidt örugglega alveg algengasta svarið við þökkum á dönsku og hvert er alveg örugglega algengasta svarið við þökkum á íslensku og ætti maður að reyna að fanga það? Ekki treysti ég mér til þess að svara því afdráttarlaust.
Allt fer þetta jú eftir samhengi - og þar komum við að málkunnáttu, smekkvísi og lipurð þýðandans.
Mér finnst það ergilegt og jafnvel óþolandi að störf þýðenda séu í mikilli hættu. Margir bókmenntaþýðendur hafa bætt salti í grautinn með ýmsum nytjaþýðingum, en nú heyrir það til undantekninga að mennskir þýðendur þýði leiðbeiningabæklinga með brauðristum eða uppþvottavélum.
Sem er – þegar út í það er farið - ólán, því þar höfum við raunverulegar hagnýtar afleiðingar af því ef þýðingin misferst. Brauðsneiðin brennur.
Og líkurnar á því að fólk helgi líf sitt þýðingum minnka.
Sumir verkbeiðendur, sem áður hafa keypt bókmenntir í stórum stíl, eru farnir að nota vélþýðingar til þess að þýða texta og biðja svo mennska þýðendur að lesa yfir til að sníða af mestu vankantana. Þetta starf er eðli málsins samkvæmt frekar leiðinlegt, það er verr borgað en frumþýðing, en tæplega minni vinna ef vel á að vera. Yfirlesarinn þyrfti jú helst að bera saman frumtextann við hinn þýdda texta til þess að vera viss um að merkingin hafi skilað sér óbrengluð.
Ég er endalaust þakklát fyrir þýðendur, sem færa okkur lifandi texta á örtungumálið okkar. Þeir þýða ekki bara orð heldur heila menningarheima. Þeir þýða bæði hið sagða og hið ósagða. Þeir eru ofurhetjur.
En við erum líka okkar eigin þýðendur. Mjög oft lendum við í aðstæðum þar sem íslenskan er ekki nóg. Við þurfum að bregða fyrir okkur öðru máli. Oftast er þetta mál enskan.
Ekki skal ég gera lítið úr því hversu fögur og hversu hagnýt enska tungan er. En mig langaði líka til að tala um önnur tungumál og hvers virði það er að læra þau. Nú er sótt talsvert að tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum – þurfum við að læra dönsku? Og hvað með þriðju og fjórðu málin í framhaldsskóla? Þurfum við þau? Ég meina, jafnvel þeir sem aldrei hafa lært spænsku geta látið farsímann lesa matseðilinn fyrir sig og bent á viðeigandi rétti.
Þetta tengist svolítið annarri stefnu hvað varðar nám almennt. Nú er stundum talað um að það skipti meira máli að læra að afla upplýsinga en það skiptir máli að innbyrða upplýsingarnar sjálfar. Það skipti ekki öllu máli að vita hvaða ár Gamli-Sáttmáli var undirritaður, heldur að öðlast nægt miðlalæsi til þess að geta flett því upp og lagt mat á trúverðugleika upplýsinganna.
Og vissulega er gott að geta sótt sér upplýsingar.
En það er líka svo gott að geta litið yfir íslenskan móa og borið þar kennsl á hrafnaklukkuna, gullmuruna, maríustakkinn og bláberjalyngið án þess að þurfa að spyrja app. Og við spyrjum heldur ekkert alltaf app. Þannig virkar það ekki. Þegar við erum stödd í móanum á sumardegi er ekki til bóta fyrir upplifunina að sækja app. Annað hvort vitum við þetta eða ekki.
Það er gaman að aka Öxnadalinn, horfa á hólana hálf-fylla dalinn og hugsa samtímis til Jónasar og Hannesar sem kölluðust á um þetta landslag. Það er gaman að vita hverjir Jónas og Hannes eru. Það er gaman að vita hluti - það gerir heiminn að áhugaverðari stað. Það gerir hversdaginn frjórri. Ég er til í að halda með utanbókarlærdómi.
Og ég er sem sagt líka til í að halda með tungumálanámi.
Það er gömul saga og ný að í tungumál sé byggð ákveðin afstaða þeirra sem það tala til heimsins. Eða er það kannski þannig að tungumálin beinlínis móti afstöðu þeirra sem þau tala til heimsins? Um það má lengi deila - en engu að síður má í þeim finna ótaldar sérviskur og frávik í tungumálum sem ekki þýðast alltaf svo greiðlega.
Klukkan er að ganga tólf, heyrðist oft í móður minni, klukkan þrjár mínútur yfir ellefu, þegar ég var unglingur sem illa gekk að koma í háttinn. Mér sveið þetta - hvernig gat það talist sanngjarnt að vera farin að ræða um miðnætti rétt um ellefu?
Síðar kynntist ég svo þeim djúpa ótta sem við þekkjum öll þegar við eigum stórafmæli - óttanum við að einhvern tímann á næstunni verði nýlega þrítugri konu lýst sem „konu á fertugsaldri“ ef hún verður fyrir því óhappi að komast í fréttir.
Þetta er undarlegt sérkenni íslenskunnar, sem mörgum er uppsigað við. Það bólar á mótspyrnu til viðbótar við umkvartanirnar – til dæmis er fólk farið að tala um sjöuna, frekar en áttunda áratuginn.
Ég finn samt nú, þegar ég er hérna fjörutíu og þriggja ára gömul á fimmtugsaldrinum, að ég kann stöðugt betur að meta þessa sérvisku örtungunnar okkar.
Það er svolítið fallegt að horfa til tímabils sem er að hefjast, frekar en að miða við það sem síðast kláraðist. Það er einhver framsýni í þessu sem gleður mig. Er það ekki undur að vera að lifa sinn fimmta áratug á þessari jörð? Er það eitthvað verra en að tala um að maður hafi lifað fjóra áratugi og eitthvað til viðbótar?
Fyrr í ár kom út bók eftir Sophia Smith Galer sem heitir hinu uggvænlega tungumáli: How to Kill a Language – eða Hvernig farga skal tungumáli. Hún fjallar um það hvernig tungumál hverfa og af hverju þau gera það. Orsakirnar eru bæði leyndar og ljósar, en málhafarnir hverfa frá notkun móðurmáls síns þegar innviðir málsins duga ekki lengur til allra samskipta, hvernig sem á því stendur. Þá koma upp kaldar hagfræðispurningar: Hversu miklu skal kosta til þess að varðveita tungumál? Hvers virði er tungumál?
Og auðvitað er endalaust hægt að ræða um virði hluta sem eru ekki til sölu. Hvers virði er fiðrildategund í útrýmingarhættu?
Við lifum í samfélagi nytjahyggjunnar. Excel-skjöl fylla allar tölvur, að reyna að finna út hvernig megi skera út óþarfann, skera út óþarfann, skera út óþarfann.
Með árunum verð ég stöðugt meiri málsvari óþarfans. Þetta er eins og að vilja losna við mold úr landbúnaði. Við viljum bara kartöflur, ekki allan þennan subbugang með moldina!
Það sama gildir um listina. Virkir í athugasemdum eru svolítið á því að við getum látið duga að skrifa metsölubækur og framleiða Nóbelsskáld. Mætti ekki sleppa restinni af bókmenntunum? Og væri ekki hægt að spara stórfé ef við framleiðum bara góðar bíómyndir og sleppum þessum lélegu?
Það er erfitt að útskýra fyrir fólki sem hugsar svona af hverju skrýtnar myndlistarsýningar sem eiginlega engir sækja skipta máli. Það er erfitt að skilgreina það hvernig ein hugmynd frjóvar aðra, hvernig samfélag hinna skapandi greina er lifandi vistkerfi eins og skógur eða sjórinn, þar sem allir þættir hanga saman í keðju.
Þetta er erfitt að útskýra þegar er flöt niðurskurðarkrafa í fjárlögum. Auðvitað viljum við skera þar út óþarfa stöffið.
Falla tungumál kannski undir þennan óþarfa? Bæði nám erlendra mála og stuðningur við örtunguna sem við Íslendingar varðveitum?
Þegar við segjum við þýðingarforritið Det var så lidt, skiptir máli hvort það skilar niðurstöðunni „ekkert að þakka,“ „alveg sjálfsagt,“ eða „mín var ánægjan“?
Já, auðvitað skiptir það máli þegar kemur að samskiptum við aðra manneskju. Þegar við tökum til máls, þegar við miðlum merkingu, þá erum við að segja svo margt. Orðavalið tjáir meiningu okkar, það tjáir samband okkar við þann sem við tölum við, það tjáir okkar eigið hugarástand. Það getur jafnvel sagt eitthvað um uppruna okkar og bakgrunn – hvort við erum týpan sem segir annað frekar en hitt. En sjálfvirka þýðingarvélin getur ekki miðlað neinu af þessu.
Það er gaman að vita hvað blágresið heitir, að þekkja útlínur Herðubreiðar eða að skilja taktinn í heyskap og sauðburði. Það gerir heiminn að áhugaverðari og skemmtilegri stað. Að sama skapi gerir það heiminn að áhugaverðari stað að hafa grunnþekkingu á fleiri tungumálum en okkar eigin. Að sjá hann frá öðrum sjónarhornum. Að setja sig ekki bara í spor annarra, heldur að hugsa eftir brautum þeirra tungumáls.
Íslensk tunga er lifandi menningarheimur. Hann breytist hraðar nú en hann gerði um aldir, en er þó enn hinn sami. Dýrmætur, kvikur og gjöfull þeim sem gefa honum gaum. Sérviskur íslenskunnar eru einkenni hennar, ekki vandamál.
Ríflega sjö þúsund tungumál eru töluð í heiminum – öll þeirra full af sínum eigin sérviskum og sérstökum sjónarhornum. Það eru forréttindi að eiga þess kost að kynnast einhverjum þeirra sjálfur. Forréttindi sem ég vona að við séum öll meðvituð um að hafi gildi.
Önnur forréttindi eru þýðendur, sérfræðingar sem hafa helgað starfsævina því að færa merkingu milli málheima – að færa lesendur úr sínum eigin heimi á aðra staði og á aðra tíma.
Kurteisissvarið sem rætt var um í upphafi kann að vera alveg sjálfsagt, ekkert að þakka, það var velkomið eða ekkert mál. En það sem mér liggur á hjarta þegar ég hugsa til þýðendanna er einfalt: Kærar þakkir.
Pistillinn var fluttur í Tengivagninum á Rás 1, og má hlýða á hann í Spilara RÚV, frá 51:30.


